Hjólað með hjálm Reykvísk grunnskólabörn fá ekki hjálma í skólanum.
Hjólað með hjálm Reykvísk grunnskólabörn fá ekki hjálma í skólanum. — Morgunblaðið/Sverrir
Kiwanismenn fá ekki að gefa börnum í 1. bekk í grunnskólum Reykjavíkur reiðhjólahjálma í skólunum. Hjálmarnir eru merktir Eimskip og því stangast þessi gjöf á við reglur borgarinnar um gjafir frá utanaðkomandi aðilum.

Kiwanismenn fá ekki að gefa börnum í 1. bekk í grunnskólum Reykjavíkur reiðhjólahjálma í skólunum. Hjálmarnir eru merktir Eimskip og því stangast þessi gjöf á við reglur borgarinnar um gjafir frá utanaðkomandi aðilum. Börn í öðrum sveitarfélögum eru þegar farin að þiggja hjálmana að gjöf og voru þeir fyrstu afhentir í Kópavogi fyrr í þessari viku.

Sigrún Björnsdóttir, upplýsingafulltrúi skóla- og frístundasviðs hjá Reykjavíkurborg, bendir á að reglur borgarinnar um merktar gjafir til grunnskólabarna séu skýrar. „Börn eiga ekki að vera gangandi auglýsing,“ segir hún og bendir á að frjálst sé að dreifa slíkum gjöfum annars staðar en í skólum þegar skólastarfi lýkur. 10