Ef skarð e-s er vandfyllt hefur stórt skarð verið höggvið í hópinn. Er þá skarð fyrir skildi . Að drepa í skörðin er annað mál og sést sjaldnar, e.t.v. vegna stórbættrar tannheilsu.
Ef
skarð e-s er vandfyllt
hefur
stórt skarð verið höggvið
í hópinn. Er þá
skarð fyrir skildi
.
Að drepa í skörðin
er annað mál og sést sjaldnar, e.t.v. vegna stórbættrar tannheilsu. Það þýðir
að tala óskýrt
, tannfáir
drápu
(: slógu, slettu)
tungunni í skörðin
og urðu loðmæltir.