Góður húðskrúbbur hefur mikið að segja.
Góður húðskrúbbur hefur mikið að segja. — Getty Images/iStockphoto
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Það er ýmislegt hægt að gera vikurnar og dagana fyrir brúðkaupsdaginn til að tryggja frísklegt útlit þegar stóri dagurinn rennur upp. Góð hár- og húðhirða gerir gæfumuninn. Hér koma nokkur atriði sem vert er að skoða, þetta er allt hægt að gera heima við. Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is
Líkamsskrúbbur sem dekrar við þig Húðin mýkist og öðlast ljómandi yfirbragð ef hún er skrúbbuð reglulega. Kaffiskrúbburinn frá Skinboss vinnur gegn appelsínuhúð, sliti og þurrki svo eitthvað sé nefnt auk þess að næra hana. Þessi dekrar við húðina. Íslenski skrúbburinn frá SkinBoss fæst meðal annars í Góðri heilsu og Lyfjavali í Mjódd.

Perluhvítar tennu r Brúðhjónin brosa vonandi breitt á brúðkaupsdaginn, þá er nú ekki verra að skarta skjannahvítum tönnum. Tannhvíttunarstrimlarnir frá Mr. Blanc eru einfaldir í notkun. Þeir hreinsa bletti af yfirborði tannanna og hvítta þær. Meðferðin tekur um 30 mínútur hverju sinni en mælt er með að nota strimlana á hverju kvöldi í tvær vikur.

Dúnmjúk húð Húðburstinn frá Clarisonic hreinsar fullkomlega án þess að erta húðina. Burstinn er byltingarkenndur og sagður hreinsa húðina sex sinnum betur en hefðbundin húðhreinsun. Þessi ætti að tryggja tandurhreina og ljómandi húð á brúðkaupsdaginn.

Djúpnæring fyrir háriðH árið má ekki gleymast í undirbúningnum. Restorative Hair Mask frá Moroccanoil er sérstaklega hannaður fyrir skemmt, viðkvæmt eða efnameðhöndlað hár. Þessi 5-7 mínútna endurlífgandi meðferð byggir fljótt upp hárið.

Langar og sterkar neglur Þær sem vilja skarta löngum nöglum án þess að fá sér gervineglur ættu að prófa Essie Millionails-naglastyrkingu nokkrum vikum fyrir brúðkaup.

Sólarlaus brúnka Margir vilja gæða húðina sólbrúnum lit fyrir brúðkaupsdaginn. Létt brúnkukrem eða brúnkugel er sniðugt að bera á húðina daginn áður. Skynsamlegt er þó að prófa brúnkukremið vel nokkrum dögum áður en brúðkaupsdagurinn rennur upp.

Löng og þétt augnhár RapidLash er tilvalið fyrir þær sem vilja fá lengri og þykkari augnhár. RapidLash er serum sem er borið á augnhárin einu sinni á dag og árangur sést eftir fjórar til sex vikur. Serumið styrkir og nærir augnhárin sem verða fallegri, lengri og þéttari. Varan er örugg og hefur verið vottuð af augn- og húðlæknum.

Silkimjúkir fætur Baby Foot Easy Pack fjarlægir dauða húð og gerir fæturna silkimjúka eftir aðeins eina notkun. Þetta er gagnlegt fyrir þær sem ætla að vera í opnum skóm á brúðkaupsdaginn. Ráðlagt er að nota Baby Foot um tíu dögum fyrir stóra daginn.

Andlitsmaski sem frískar Silica Mud Mask-kísilmaskinn er dæmi um góðan maska, hann er ein vinsælasta Blue Lagoon-húðvaran. Hvítur kísillinn djúphreinsar og fjarlægir dauðar húðfrumur og tryggir ljómandi húð. Má nota á andlit og líkama.