Sveinbjörn Pétursson
Sveinbjörn Pétursson
Stjarnan hefur klófest handknattleiksmarkvörðinn Sveinbjörn Pétursson og hann skrifaði í gær undir tveggja ára samning við Garðabæjarfélagið. Sveinbjörn hefur undanfarin fjögur ár leikið með þýska 2. deildar liðinu Aue undir stjórn Rúnars...

Stjarnan hefur klófest handknattleiksmarkvörðinn Sveinbjörn Pétursson og hann skrifaði í gær undir tveggja ára samning við Garðabæjarfélagið. Sveinbjörn hefur undanfarin fjögur ár leikið með þýska 2. deildar liðinu Aue undir stjórn Rúnars Sigtryggssonar. Stjarnan endurheimti á dögunum sæti sitt í Olís-deildinni eftir eins árs veru í 1. deild. Sveinbjörn sem er 27 ára á að baki 8 A-landsleiki. Hann lék m.a. með HK og Akureyri áður en hann flutti til Þýskalands. iben@mbl.is