Brúðkaup þeirra var stundum kallað „brúðkaup aldarinnar“.
Brúðkaup þeirra var stundum kallað „brúðkaup aldarinnar“. — AFP
Það var í apríl árið 1956 sem leikkonan Grace Kelly gekk að eiga Rainier fursta af Mónakó en þau trúlofuðu sig þremur dögum eftir að þau hittust.

Það var í apríl árið 1956 sem leikkonan Grace Kelly gekk að eiga Rainier fursta af Mónakó en þau trúlofuðu sig þremur dögum eftir að þau hittust. Fréttirnar af trúlofuninni skóku heiminn og brúðkaupið var gjarnan kallað „brúðkaup aldarinnar“ í fjölmiðlum. Samkvæmt gamalli hefð þurfti Kelly og fjölskylda hennar að borga heimanmund að andvirði um 247 milljóna króna til að brúðkaupið gæti átt sér stað.

Tvær athafnir voru svo haldnar, ein trúarleg og ein borgaraleg. Borgaralega athöfnin fór fram þann 18. apríl og eftir athöfnina fögnuðu brúðhjónin með 3.000 mónakóskum borgurum. Trúarlega athöfnin fór svo fram daginn eftir. Talið er að um 30 milljón manns hafi fylgst með athöfninni þar sem henni var sjónvarpað. Kjóllinn sem Kelly klæddist var hannaður af Helen Rose en um 30 saumakonur sáu um að fullkomna kjólinn á sex vikum. 700 vinir og vandamenn þeirra brúðhjóna voru viðstaddir þessa athöfn. Þegar leið á kvöldið stungu brúðhjónin af og héldu í sjö vikna brúðkaupsferð um Miðjarðarhafið.