— Morgunblaðið/Eggert
„Þetta lítur hreint út sagt skelfilega út. Lundastofninn er hruninn og hefur minnkað um 60% á 13 árum. Mest er minnkunin á Suður- og Vesturlandi. Veiðar á lunda eru ekki sjálfbærar á öllu landinu og engin spurning um stöðvun á veiðum.

„Þetta lítur hreint út sagt skelfilega út. Lundastofninn er hruninn og hefur minnkað um 60% á 13 árum. Mest er minnkunin á Suður- og Vesturlandi. Veiðar á lunda eru ekki sjálfbærar á öllu landinu og engin spurning um stöðvun á veiðum. Það er í raun og veru alþjóðlegt hneyksli hvað er í gangi hér,“ segir Erpur Snær Hansen, líffræðingur á Náttúrustofu Suðurlands, og vísar til lundaveiða sem enn eru stundaðar hér á landi.

Reiknuð hefur verið út sjálfbærni veiðitegunda og í fyrsta skipti er slíkt mat lagt til grundvallar veiðistjórnuninni. „Við viljum uppbyggilegar umræður um þetta og leggjum til að allar veiðar á fuglum verði stundaðar á vísindalegum grunni á sambærilegan hátt og Hafrannsóknastofnun gerir með fiskveiðarnar. Þar er metið hvert veiðiþolið er og ef það er ekkert þá er veiðum hætt og ef stofninn þolir það, er spurning um að stjórna sókninni þannig að ekki verði farið of geyst.“

Hann segir að stjórnvöld sem hafa veiðistjórnun á sinni könnu hafi nú gott tækifæri til að betrumbæta þessa stjórnsýslu. 4