Upplagt spil. A-AV
Norður | |
♠109754 | |
♥763 | |
♦K10 | |
♣ÁK10 |
Vestur | Austur |
♠-- | ♠ÁK2 |
♥1052 | ♥ÁDG84 |
♦97542 | ♦G863 |
♣98765 | ♣4 |
Suður | |
♠DG863 | |
♥K9 | |
♦ÁD | |
♣DG32 |
Suður spilar 4♠.
Austur opnar á 1♥, suður segir 1♠, norður hækkar í 3♠ og suður lyftir í geim. Út kemur ♥2 (þriðja hæsta), lítið úr borði og óvænt hlé. Austur leggur frá sér spilin og lítur hugsandi til lofts. Eftir tveggja mínútna störu bregst suðri þolinmæðin og leggur upp: „Gef tvo á tromp og einn á hjarta.“
„Við skulum spila þetta,“ segir austur og lætur ♥G í slaginn.
Suður drepur á ♥K, dregur tromphund hálfa leið upp úr blævængnum en hættir við á síðustu stundu og spilar í staðinn hjarta um hæl. Rífur þannig samganginn fyrir laufstunguna, sem liggur í loftinu.
„Keppnisstjóri!“ Það er austur sem kallar og honum er heitt í hamsi. „Ég krefst þess að fá slag á spaðatvistinn.“ Keppnisstjóri flettir upp í lögbókinni, finnur ekkert viðeigandi í hvelli og kveðst þurfa að ráðfæra sig við sér reyndari menn.
„Ég þarf að spyrja Svein Rúnar.“