Við Gullfoss Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian við Gullfoss í gær.
— Ljósmynd/Skjáskot af Snapchat
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Ofurparið Kim Kardashian og Kanye West kom til landsins í gær ásamt fylgdarliði. Gista þau á Hótel 101 í miðbæ Reykjavíkur en þau eru hér til að taka upp tónlistarmyndband við lag West.
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Ofurparið Kim Kardashian og Kanye West kom til landsins í gær ásamt fylgdarliði. Gista þau á Hótel 101 í miðbæ Reykjavíkur en þau eru hér til að taka upp tónlistarmyndband við lag West. Segir í frétt US Weekly að þau séu einnig að taka upp efni í raunveruleikaþáttinn vinsæla „
Keeping up with the Kardasians“.
Fjöldi manns mætti fyrir utan 101 hótel í gær til að fanga þau á mynd og myndaðist töluverður æsingur þegar ofurparið fór um borð í Mercedez Benz-rútu áleiðis að perlum Suðurlands. Þau nýttu gærdaginn til að skoða Gullfoss meðal annars og samkvæmt samfélagsmiðlum voru þau ánægð með fossinn og rokið sem blés á stjörnurnar. „Þetta er yndislegt,“ sagði hún m.a. þegar hún horfði á fossinn í allri sinni dýrð.
Þá heimsóttu þau Friðheima í Reykholti í Biskupstungum og smökkuðu á tómataafurðum sem staðurinn hefur upp á að bjóða.