Bistro Boy Einn þeirra tónlistarmanna sem teknir verða á teppið í kvöld.
Bistro Boy Einn þeirra tónlistarmanna sem teknir verða á teppið í kvöld.
Fjórir listamenn útgáfunnar Möller Records verða „teknir á teppið“ á tónleikum í Tjarnarbíói í kvöld, laugardag, klukkan 20.
Fjórir listamenn útgáfunnar Möller Records verða „teknir á teppið“ á tónleikum í Tjarnarbíói í kvöld, laugardag, klukkan 20. Viðburðurinn er hluti af menningarviðburðinum Teppið sem Tjarnarbíó stendur fyrir og jafnframt lokahnykkurinn á tónleikaröð Möller Records sem fram fór í Belfast á Norður-Írlandi og Dublin á Írlandi í mars. Tónlistarmennirnir sem koma fram eru ólíkir en hafa getið sér gott orð á liðnum árum í heimi raftónlistar og hafa sent frá sér plötur sem hefur verið vel tekið. Þetta eru þeir Bistro Boy, Einar Indra, DAVEETH og Gunnar Jónsson Collider.