Hin árlega kaffisala Kristniboðsfélags kvenna verður haldin í Kristniboðssalnum að Háaleitisbraut 58-60, sunnudaginn 1. maí og hefst kl. 14. Þar verða að vanda ljúfar kræsingar á boðstólum.
Hin árlega kaffisala Kristniboðsfélags kvenna verður haldin í Kristniboðssalnum að Háaleitisbraut 58-60, sunnudaginn 1. maí og hefst kl. 14. Þar verða að vanda ljúfar kræsingar á boðstólum. Ágóði kaffisölunnar rennur til kristniboðs, hjálpar- og þróunarstarfs Kristniboðssambandsins. Meðal verkefna eru skólabyggingar og bygging heimavista fyrir stúlkur í Keníu. Lestrarkennsla og hjálp til handa götubörnum í Eþíópíu. Stuðningur við sjónavarpsskóla fyrir flóttabörn í Sýrlandi og æskulýðsstarf í Japan. Allir eru velkomnir í kaffið og styðja um leið gott málefni, segir í tilkynningu.