Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfing-ur úr GR, lék annan hringinn á LET Access-mótaröðinni í Sviss á 69 höggum í gær, á þremur undir pari, og er í góðri stöðu fyrir síðasta keppnisdaginn, sem leikinn verður í dag.
Ólafía lék á pari í fyrradag og er því á þremur undir pari eftir hringina tvo. Hún fór upp um 17 sæti í gær og er í 10. sæti, sjö höggum á eftir spænskri konu sem hefur þriggja högga forskot í efsta sæti.
Þetta er annað mótið hjá Ólafíu á LET Access-mótaröðinni á þessu tímabili, en mótaröðin er sú næststerkasta í Evrópu. iben@mbl.is