Eiður Smári Guðjohnsen
Eiður Smári Guðjohnsen
Eiður Smári Guðjohnsen lék á ný með Molde í gærkvöld þegar liðið vann Strömsgodset örugglega, 4:2, í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Eiður Smári Guðjohnsen lék á ný með Molde í gærkvöld þegar liðið vann Strömsgodset örugglega, 4:2, í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Eiður missti af tveimur síðustu leikjum Molde vegna smávægilegrar tognunar en var klár á ný í slaginn í gær og spilaði síðasta hálftímann. Eiður fékk mikið lófaklapp þegar honum var skipt inn á.

Hannes Þór Halldórsson landsliðsmarkvörður hélt hreinu þegar Bodö/Glimt gerði 0:0 jafntefli við Vålerenga. Hannes varði mjög vel frá Elíasi Má Ómarssyni úr besta færi leiksins sem Óslóarliðið fékk, en Elías var þá nýkominn inn á sem varamaður. vs@mbl.is