Afi barns á leikskólanum Kiðagili á Akureyri var fyrir mistök sendur heim með rangt barn fyrir nokkrum vikum. Soffía Vagnsdóttir, fræðslustjóri, segir að röð tilviljana hafi leitt til þessarar hörmulegu niðurstöðu.

Afi barns á leikskólanum Kiðagili á Akureyri var fyrir mistök sendur heim með rangt barn fyrir nokkrum vikum. Soffía Vagnsdóttir, fræðslustjóri, segir að röð tilviljana hafi leitt til þessarar hörmulegu niðurstöðu. „Eins og gefur að skilja var þetta mikið áfall fyrir alla,“ segir Soffía.

Afinn, sem er mikið fjarverandi og hittir barnið sjaldan, fór á leikskólann til að sækja barnabarn sitt, sem er tveggja og hálfs árs. Hann fór hins vegar inn á ranga deild og gaf þar upp nafn barnsins sem hann ætlaði að sækja. Leikskólakennarinn sem tók á móti honum taldi sig heyra annað nafn, sem var líkt, og sótti barn með því nafni.

Afinn fór síðan heim og hálftíma síðar kom amman heim og tók þá eftir því að barnið var ekki barnabarn þeirra hjóna. Þau fóru þá með barnið til baka á leikskólann. Í millitíðinni hafði móðir barnsins komið til að sækja það, en greip í tómt.

Soffía segir að rætt hafi verið við bæði leikskólastarfsmenn og foreldra, sem hafi tekið vel á málinu. Atvikið teljist engu að síður alvarlegt, enda segi reglur til um að hver sem er eigi ekki að geta gengið inn á leikskóla og sótt hvaða barn sem er. Í kjölfarið hafi verið farið yfir alla ferla og ítrekaðar reglur um það þegar börn eru sótt. Allt verði gert til að svona atvik gerist ekki aftur.