Notagildi Fólk kaupir í auknum mæli útskriftargjafir með praktíkina í huga. „Mér finnst ákveðin langtímahugsun vera í þessu núorðið og það kemur viðtakendunum, útskriftarnemunum, bara til góðs,“ segir Kjartan í Epal.
Notagildi Fólk kaupir í auknum mæli útskriftargjafir með praktíkina í huga. „Mér finnst ákveðin langtímahugsun vera í þessu núorðið og það kemur viðtakendunum, útskriftarnemunum, bara til góðs,“ segir Kjartan í Epal. — Morgunblaðið/Styrmir Kári
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.

Jón Agnar Ólason

jonagnar@mbl.is

„Það sem fólk kaupir hjá okkur til útskriftargjafa hefur mikið til verið á sömu nótunum síðustu árin, en samt finnst mér að í auknum mæli sé verið að kaupa praktískar gjafir sem hugsaðar eru til langs tíma, ekki síst ef fólk er að fara búa eða hyggur á búskap,“ segir Kjartan Páll Eyjólfsson, framkvæmdastjóri Epal, þegar talið berst að því sem vinsælast er í versluninni til útskriftargjafa. „Það er algengt að kaupa eitthvað fallegt til heimilisins og það er þá oft fyrir dömur sem eru að útskrifast. Það er eins í þessu sem öðru að það er yfirleitt erfiðara að finna gjafir fyrir herrana en samt sem áður eigum við til ýmislegt sem hefur ratað í útskriftargjafir fyrir herrana.“

Orðabækur á undanhaldi

Kjartan bendir á í þessu sambandi að í eina tíð hafi hlemmstór orðabók nánast verið skyldugjöf þegar kom að útskriftum; varla hafi verið hægt að tala um að viðkomandi nemi hafi verið útskrifaður nema hann fengi minnst eina væna orðabók að gjöf við það tilefni. Nú sé öldin önnur.

„Orðabækur eru komnar á netið og eru þar aðgengilegar öllum sem nota á annað borð tölvur. Þar af leiðandi leiðir fólk gjarnan hugann að öðrum praktískum hlutum til heimilisins, einhverju sem fólk getur átt alla ævi ef því er að skipta. Mér finnst ákveðin langtímahugsun vera í þessu núorðið og það kemur viðtakendunum, útskriftarnemunum, bara til góðs.“

Meðal þess sem Kjartan hefur merkt að er vinsælt til útskriftargjafa eru tveir hlutir sem eru, vel að merkja, íslensk hönnun.

„Mér dettur einna fyrst í hug Shorebird-fuglarnir hans Sigurjóns Pálssonar, sem framleiddir eru af Normann Copenhagen. Þeir eru eigulegir hlutir, sígild hönnun sem hentar fullkomlega fyrir bæði kyn ásamt því að vera á fínu verðbili til gjafa við þetta tækifæri. Svo erum við með ákaflega falleg rúmföt eftir Ingibjörgu Hönnu, sem eðli máls samkvæmt eru gjafir sem bókstaflega allir geta notað, og henta báðum kynjum. Þau hafa líka verið mjög vinsæl til brúðkaupsgjafa.“

Klassík á klassík ofan

Kjartan bætir því svo við að af nægu sé að taka þegar kemur að því að velja fallega gripi handa dömum sem eru að útskrifast enda að mörgu leyti auðveldara að finna gjafir handa þeim. „Skartgripaskrín eigum við til í nokkrum útgáfum og þau hafa verið gríðarlega vinsæl enda notagildið ótvírætt og verðið hagstætt en þau eru flest á bilinu 5-15 þúsund krónur. Svo eru vírkörfurnar frá Ferm Living mikið stáss og hafa verið mjög vinsælar enda fást þær í ýmsum stærðum. Þær hafa verið vinsælli til gjafa fyrir dömurnar en engu að síður gætu herrarnir vel fundið not fyrir þær til að mynda sem framúrskarandi flott karfa fyrir óhreina þvottinn,“ bætir Kjartan við og kímir.“

Í framhaldi bendir Kjartan á að áðurnefndir vaðfuglar eftir Sigurjón Pálsson, Shorebird, og önnur álíka trédýr til skrauts, séu einmitt svo vinsæl því hægt sé að gefa þau í þeirri fullvissu að þau passa nokkuð örugglega inn á hvaða heimili sem er, án tillits til þess í hvaða stíl er innréttað á viðkomandi heimili. „Dýrin pluma sig á hvaða hillu sem er og eru þannig fullkomlega frístandandi prýði í hvaða híbýlum sem vera skal. Sama má segja um Design Letter-línuna okkar, sem samanstendur af margs konar fallegum munum sem skreyttir eru með bókstaf úr leturgerð sem sjálfur Arne Jacobsen hannaði á sínum tíma. Línan inniheldur drykkjarkrúsir, minnisbækur og margt fleira sem hefur verið gríðarlega vinsælt og þá er iðulega valinn gripur sem skartar upphafsstaf þess sem er að útskrifast. Þetta er eins og annað sem ég nefndi, sígild hönnun sem hentar vel til gjafa og er til þess fallin að koma að gagni og gleði um ókomna tíð.“