Landsnet Steinunn Þorsteinsdóttir hefur verið ráðin í nýtt starf upplýsingafulltrúa Landsnets.
Landsnet Steinunn Þorsteinsdóttir hefur verið ráðin í nýtt starf upplýsingafulltrúa Landsnets. Mun hún bera ábyrgð á miðlun upplýsinga, skipulagningu viðburða og mótun stefnu Landsnets í samfélagsmiðlun eftir því sem kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Steinunn er með BA próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands auk þess sem hún hefur sótt fjölda námskeiða hjá endurmenntun HÍ. Undanfarin 13 ár hefur hún starfað sem upplýsinga- og kynningarfulltrúi hjá Hafnarfjarðabæ.