Í tilefni af tuttugu ára afmæli Stóru upplestrarkeppninnar efna Íslensk málnefnd og Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn til málþings í Norræna húsinu í dag kl. 14.00–16.00.

Í tilefni af tuttugu ára afmæli Stóru upplestrarkeppninnar efna Íslensk málnefnd og Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn til málþings í Norræna húsinu í dag kl. 14.00–16.00.

Á málþinginu, sem nefnist Sæktu þér að lesa sögur eða ljós, verður fjallað um gildi og áhrif keppninnar, möguleika sem í henni felast, tengsl lesskilnings og vandaðs upplestrar og horft fram á veginn.

Framsögumenn eru fræðimenn, kennarar, skáld, nemendur auk fulltrúa menntamálayfirvalda.

Málþingið er ætlað skólafólki, foreldrum og þeim sem er annt um læsi, lestraráhuga og vandaðan upplestur.