Fyrsta umferð landsliðsflokks Íslandsmótsins í skák fór eftir bókinni nema hvað stigahæsti maður mótsins, Hjörvar Steinn Grétarsson, gerði jafntefli við Einar Hjalta Jensson.

Fyrsta umferð landsliðsflokks Íslandsmótsins í skák fór eftir bókinni nema hvað stigahæsti maður mótsins, Hjörvar Steinn Grétarsson, gerði jafntefli við Einar Hjalta Jensson.

Mótið fer fram í Tónlistarskóla Seltjarnarness og hófst með setningarathöfn í gær. Eftir fyrstu umferðina eru fimm menn með einn vinning, þeir Björn Þorfinnsson, Jóhann Hjartarson, Bragi Þorfinnsson, Jón Viktor Gunnarsson og Héðinn Steingrímsson.