Stjórnlagadómstóll í Þýskalandi, æðsta dómsstig landsins, kvað upp þann dóm í vikunni að lagahöfundinum Moses Pelham hefði verið heimilt að nota tveggja sekúndna bút úr lagi hljómsveitarinnar Kraftwerk, „Metall auf Metall“, í lag sitt...
Stjórnlagadómstóll í Þýskalandi, æðsta dómsstig landsins, kvað upp þann dóm í vikunni að lagahöfundinum Moses Pelham hefði verið heimilt að nota tveggja sekúndna bút úr lagi hljómsveitarinnar Kraftwerk, „Metall auf Metall“, í lag sitt „Nur Mir“ með söngkonunni Sabrinu Setlur frá árinu 1997. Lag Kraftwerk er frá árinu 1977.
Fyrir fjórum árum komst Hæstiréttur Þýskalands að þeirri niðurstöðu að brotið hefði verið á höfundarrétti Kraftwerk með notkun þessa tveggja sekúndna búts. Pelham og Setlur áfrýjuðu þeim úrskurði.