Karlmaður sem féll af bifhjóli á Þingvallavegi við Leirvogsá síðdegis í fyrradag er látinn. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítalans í Fossvogi þar sem hann var úrskurðaður látinn. Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglu.
Karlmaður sem féll af bifhjóli á Þingvallavegi við Leirvogsá síðdegis í fyrradag er látinn. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítalans í Fossvogi þar sem hann var úrskurðaður látinn.
Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglu.
Fram kom í fyrrakvöld að maðurinn var einn á ferð. Virðist hann hafa misst vald á hjólinu og lent utan í vegriði.