— Morgunblaðið/Styrmir Kári
Mick Hucknall, söngvari Simply Red, sýndi á tónleikum hljómsveitarinnar í Laugardalshöll í gærkvöldi að hann hefur engu gleymt. Í ár eru liðin 30 ár síðan hljómsveitin spilaði hér í sitt fyrsta og eina skipti á tónleikum í Laugardalshöll.
Mick Hucknall, söngvari Simply Red, sýndi á tónleikum hljómsveitarinnar í Laugardalshöll í gærkvöldi að hann hefur engu gleymt. Í ár eru liðin 30 ár síðan hljómsveitin spilaði hér í sitt fyrsta og eina skipti á tónleikum í Laugardalshöll. Hljómsveitin, sem hefur selt yfir 60 milljónir platna á ferli sínum, flutti að sjálfsögðu öll sín vinsælustu lög á hljómleikunum, þar á meðal slagarann If You Don't Know Me By Now.