Blásið verður til brasilískrar tónlistarveislu í Eyrarbakkakirkju annað kvöld kl. 20.
Blásið verður til brasilískrar tónlistarveislu í Eyrarbakkakirkju annað kvöld kl. 20. Þá munu tónlistarmennirnir Ife Tolentino, Óskar Guðjónsson og Eyþór Gunnarsson leika af fingrum fram lög eftir Tolentino í bland við sígild bossa nova-lög eftir nokkra af helstu höfundum brasilískrar tónlistarsögu. Tolentino er brasilískur gítarleikari og söngvari.