Breski leikarinn Jeremy Irons segir eðlilegt að ofurhetjumyndin Batman v Superman hafi fengið afar neikvæða gagnrýni, en í henni fer hann með hlutverk einkaþjóns Bruce Wayne, Alfreðs.
Breski leikarinn Jeremy Irons segir eðlilegt að ofurhetjumyndin
Batman v Superman
hafi fengið afar neikvæða gagnrýni, en í henni fer hann með hlutverk einkaþjóns Bruce Wayne, Alfreðs. Irons segir þetta í samtali við dagblaðið
Daily Mail
og að hinir mjög svo neikvæðu dómar séu skiljanlegir í ljósi þess hversu lélegt handrit myndarinnar hafi verið.