Atvinnuvegirnir Verk eftir Barböru seldist á 4,2 milljónir á uppboði, sem er met.
Atvinnuvegirnir Verk eftir Barböru seldist á 4,2 milljónir á uppboði, sem er met. — Myndlist.is
Gallerí Fold stóð fyrir tvöföldu málverkauppboði í gær og fyrradag. Alls seldust um 120 verk af þeim 134 sem voru í boði. Óvenjumörg verk gömlu meistaranna voru boðin upp, t.d. 12 verk eftir Jóhannes S. Kjarval.
Gallerí Fold stóð fyrir tvöföldu málverkauppboði í gær og fyrradag. Alls seldust um 120 verk af þeim 134 sem voru í boði. Óvenjumörg verk gömlu meistaranna voru boðin upp, t.d. 12 verk eftir Jóhannes S. Kjarval. Met var slegið á fyrra kvöldinu þegar verkið Atvinnuvegirnir eftir Barböru Árnason var slegið á 4,4 milljónir, en það er hæsta verð sem verk eftir hana hefur fengið. „Það eru ekki margir kvenlistamenn sem hafa náð svona hátt í verði,“ segir Jóhann Ágúst Hansen listmunasali. Fjölmennt var á uppboðinu bæði kvöldin og mikið bar á nýjum uppboðsgestum.