Flosagjá Margir ferðamenn sækja Þingvelli heim á ári hverju.
Flosagjá Margir ferðamenn sækja Þingvelli heim á ári hverju. — Morgunblaðið/Ómar
Skúli Halldórsson sh@mbl.is Yfirvöld í Þingvallaþjóðgarði stefna að því að loka bílastæðinu við Flosagjá, sem einnig er oft kölluð Peningagjá.

Skúli Halldórsson

sh@mbl.is

Yfirvöld í Þingvallaþjóðgarði stefna að því að loka bílastæðinu við Flosagjá, sem einnig er oft kölluð Peningagjá. Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður segir í samtali við Morgunblaðið að það sé gert vegna tilmæla UNESCO, Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna.

„Við ætlum að verða við þessum tilmælum UNESCO og loka þessu bílastæði. Við áformum að það verði eingöngu opið fötluðum, öldruðum og þeim sem eru hreyfihamlaðir.“

Ólafur segir að frá áramótum hafi það nokkrum sinnum gerst að olía hafi lekið úr ferðaþjónustubílum og farið ofan í Flosagjá.

„Við viljum því loka stæðinu af umhverfisástæðum en einnig til að bæta ásýnd þjóðgarðsins. Þegar staðið er uppi á barmi Almannagjár eru bílljósin blikkandi víða og þetta stæði blasir þar við.“

Leggur stofnunin það sjónarmið til grundvallar að þjóðgarður sé til þess gerður að varðveita upprunalega ásýnd náttúrunnar.

Upphaf skógræktar á Íslandi

Mæltist hún því til þess að öll aðkomin tré í landi þjóðgarðsins yrðu felld. Í þjóðgarðinum má meðal annars finna furulund þar sem skógrækt á Íslandi hóf göngu sína. Rétt fyrir aldamótin var þar haldið upp á hundrað ára afmæli hennar.