„Vegurinn er bara í ömurlegu ástandi. Það er algjörlega fráleitt að fólkinu sem býr við þennan veg sé boðið upp á þetta,“ segir Viggó Jónsson sem er í sveitarstjórn Sauðárkróks um ástand Reykjastrandarvegarins.
„Vegurinn er bara í ömurlegu ástandi. Það er algjörlega fráleitt að fólkinu sem býr við þennan veg sé boðið upp á þetta,“ segir Viggó Jónsson sem er í sveitarstjórn Sauðárkróks um ástand Reykjastrandarvegarins. Vegurinn er fjölfarnasti malarvegur í Skagafirði og er mjög holóttur.
Pálmi Þorsteinsson, rekstrarstjóri Vegagerðarinnar á Akureyri, telur ólíklegt að bundið slitlag verði lagt á veginn vegna fjárskorts. Þó stendur til að hefla hann í náinni framtíð. 10