Gítarleikarinn, söngvarinn og lagahöfundurinn Indriði kemur fram annað kvöld í Mengi og flytur þar sitt eigið sólóefni. Indriði útskrifaðist af myndlistarbraut Listaháskóla Íslands í vor sem leið.
Gítarleikarinn, söngvarinn og lagahöfundurinn Indriði kemur fram annað kvöld í Mengi og flytur þar sitt eigið sólóefni. Indriði útskrifaðist af myndlistarbraut Listaháskóla Íslands í vor sem leið. Hann er gítarleikari hljómsveitarinnar Muck og hefur undanfarið sinnt eigin tónsköpun af miklum krafti eins og segir í tilkynningu. Indriði hefur seinustu daga brýnt sverðin á tónleikaferðalagi um Írland ásamt fríðu föruneyti og ætlar að miklu leyti að styðjast við gítarinn sinn og textasmíðar annað kvöld. Húsið verður opnað klukkan 20 og tónleikarnir hefjast klukkan 21.