Sonni Ragnar Nattestad
Sonni Ragnar Nattestad
Fylkir, sem situr í næstneðsta sæti Pepsi-deildar karla í knattspyrnu með átta stig, fékk í gær til liðs við sig tvo leikmenn til þess að heyja lífróður með liðinu það sem eftir lifir sumars.

Fylkir, sem situr í næstneðsta sæti Pepsi-deildar karla í knattspyrnu með átta stig, fékk í gær til liðs við sig tvo leikmenn til þess að heyja lífróður með liðinu það sem eftir lifir sumars. Það eru færeyski varnarmaðurinn Sonni Ragnar Nattestad og slóvenski markvörðurinn Marko Pridigar.

Sonni Ragnar, sem verður 22 ára í ágúst, kemur til Fylkis á láni frá FH, en lánssamningurinn gildir út yfirstandandi leiktíð. Sonni Ragnar hefur leikið 13 landsleiki fyrir Færeyjar, en hann kom til FH í vetur og kom við sögu í einum leik í deildinni og lék tvo leiki í bikarnum fyrir FH. Hann lék áður með dönsku liðunum Vejle, Horsens og Midtjylland.

Marko Pridigar er 31 árs gamall og lék síðast með Ayia Napa, sem féll úr efstu deild á Kýpur í vor, en lengst af sínum ferli hefur hann leikið með uppeldisfélagi sínu í Slóveníu, Maribor, og varð fimm sinnum meistari með því. Þá hefur Pridigar leikið í forkeppni Meistaradeildar Evrópu og í Evrópudeildinni með Maribor. hjorvaro@mbl.is