Louis Vuitton Keepall Voyager Bag er ný taska frá Louis Vuitton en hún er rúmgóð og falleg en kostar skildinginn eða um 380 þúsund krónur.
Louis Vuitton Keepall Voyager Bag er ný taska frá Louis Vuitton en hún er rúmgóð og falleg en kostar skildinginn eða um 380 þúsund krónur.
hönnun Töskurnar frá Louis Vuitton eru einhverjar þær þekktustu í heimi og státa af einstakri framleiðsluaðferð. Vörumerkið er gamalgróið og þekkt og er tákn um gæðavöru.

hönnun Töskurnar frá Louis Vuitton eru einhverjar þær þekktustu í heimi og státa af einstakri framleiðsluaðferð. Vörumerkið er gamalgróið og þekkt og er tákn um gæðavöru.

Það vekur því ávallt athygli þegar nýjar vörur koma frá Louis Vuitton en nýlega sendi tískuhúsið frá sér nýja tösku sem kallast Louis Vuitton Keepall Voyager Bag.

Taskan er gædd svipuðu mynstri og brúnar töskur fyrirtækisins en að þessu sinni færir tískuhúsið sig yfir í grátónaðan svartan og gráan lit.

Taskan er talin einstaklega heppileg fyrir stuttar ferðir og helgarferðir enda þægileg handföng á henni og ól yfir öxlina.

Í töskunni er fjöldi hólfa fyrir smærri hluti og plássið er nægilega mikið til að ferðast þægilega á milli með fatnað til skiptanna.

Verðið er kannski ekki fyrir alla en taskan kostar 3.100 bandaríkjadali eða tæpar 380 þúsund krónur. Það verður þó að hafa það í huga að um er að ræða einstaklega vandaða tösku og vörumerki sem þykir með þeim fínni í bransanum.