Ríkisútvarpið Þóra Margrét Pálsdóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri RÚV. Þóra Margrét hefur starfað sem mannauðsstjóri Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands frá 2009 og hefur verið hópstjóri mannauðs- og samskiptamála sviðsins frá 2013.
Ríkisútvarpið Þóra Margrét Pálsdóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri RÚV.

Þóra Margrét hefur starfað sem mannauðsstjóri Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands frá 2009 og hefur verið hópstjóri mannauðs- og samskiptamála sviðsins frá 2013.

Áður vann hún sjálfstætt við ráðgjöf um mannauðsmál og vinnusálfræði, auk ýmissa verkefna bæði hér á landi og í Berlín þar sem hún bjó lengi. Einnig starfaði hún á starfsmannasviði Háskóla Íslands árin 2003-2006.

Þóra Margrét stundaði bæði grunn- og framhaldsnám í sálfræði í Berlín í Þýskalandi og lauk meistaranámi í sálfræði með áherslu á vinnu- og skipulagssálfræði árið 2002. Einnig lagði hún stund á viðbótarnám í coaching við Deutsche Psychologen Akademie í Berlín 2005-2006.

Þóra Margrét tekur við af Andreu Róbertsdóttur sem starfað hefur sem mannauðsstjóri í miklu breytingaferli sem átt hefur sér stað síðustu tvö og hálft ár hjá RÚV.