Núna á föstudag mun ferðaþjónustufyrirtækið Reykjavík Excursions hefja skipulagðar pokémon-dagsferðir í Reykjavík sem byggjast á farsímaleiknum vinsæla Pokémon GO og verða þær í boði allar helgar. Einar Bárðarson, rekstrarstjóri Reykjavík Excursions, kveðst ekki vita til þess að aðrir hafi boðið upp á slíkar ferðir áður.
Íslenskir pokémon-þjálfarar verða með í för og lét fyrirtækið hanna fyrstu íslensku pokémonana í tilefni þessarar nýstárlegu ferðar; lundann Puffy, hestinn Norton og hrútinn Rampage.
Fréttir af vinsældum farsímaleiksins um heim allan, þar sem m.a. hafi frést af fólki keyrandi utan í lögreglubíla á pokémon-veiðum, hafi hins vegar orðið til þess að ákveðið var að slá til.
„Það verður ekið um þá staði í borginni þar sem vinsælustu og verðmætustu pokémonarnir halda sig,“ segir Einar sem segir ferðina bæði fyrir erlenda ferðamenn og Íslendinga. annaei@mbl.is