„Ég hef ekki séð neitt, hvorki faglegar rannsóknir né af minni klínísku reynslu, sem bendir til þess að það sé skaðlegt fyrir þolendur að tíðniupplýsingar birtist,“ segir Þóra Sigríður Einarsdóttir, sálfræðingur hjá Áfalla- og...

„Ég hef ekki séð neitt, hvorki faglegar rannsóknir né af minni klínísku reynslu, sem bendir til þess að það sé skaðlegt fyrir þolendur að tíðniupplýsingar birtist,“ segir Þóra Sigríður Einarsdóttir, sálfræðingur hjá Áfalla- og sálfræðimiðstöðinni, um umræður um kynferðisbrot í fjölmiðlum.

Segir hún opna umræðu um kynferðisbrot erfiða en hún sé að sama skapi nauðsynleg. Ítarlegar lýsingar á kynferðisbrotum í fjölmiðlum geti þó verið skaðlegar fyrir þolendur. „Að fram komi ítarlegar lýsingar í fjölmiðlum á einni erfiðustu lífsreynslu sem fólk hefur upplifað,“ segir Sigríður.

Var send heim í leigubíl

Í frásögn ungrar konu í Morgunblaðinu í dag kemur fram að hún telur að sér hafi verið byrluð ólyfjan í miðborg Reykjavíkur um liðna helgi. Að sögn konunnar sögðu lögreglumenn henni að fara heim í leigubíl í stað þess að beina henni á bráðamóttöku nauðgana á Landspítalanum eins og verklagsreglur lögreglunnar segja til um. 4 og 14