Sæplast er gamalgróið fyrirtæki á Dalvík, sem hefur byggt upp vörulínu sem er þekkt víða um heim. Fyrirtækið var upphaflega stofnað árið 1984 og tók að framleiða vörur fyrir sjávarútvegsfyrirtæki, sem hentuðu íslenskum aðstæðum.
Sæplast er gamalgróið fyrirtæki á Dalvík, sem hefur byggt upp vörulínu sem er þekkt víða um heim. Fyrirtækið var upphaflega stofnað árið 1984 og tók að framleiða vörur fyrir sjávarútvegsfyrirtæki, sem hentuðu íslenskum aðstæðum. Eftir að hafa heitið Promens um nokkurra ára skeið var Sæplastsnafnið aftur tekið í notkun snemma á síðasta ári þegar breska fyrirtækið RPC-Group keypti fyrirtækið enda er nafnið þekkt á heimsvísu.