[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Baksvið Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Eigendur sjávarútvegsfyrirtækisins Hafnarnes Ver hf. í Þorlákshöfn hyggjast halda áfram starfsemi, eftir bestu getu, þrátt fyrir sölu á meginhluta kvóta fyrirtækisins til HB Granda hf.

Baksvið

Helgi Bjarnason

helgi@mbl.is

Eigendur sjávarútvegsfyrirtækisins Hafnarnes Ver hf. í Þorlákshöfn hyggjast halda áfram starfsemi, eftir bestu getu, þrátt fyrir sölu á meginhluta kvóta fyrirtækisins til HB Granda hf. Hráefni hefur verið tryggt til vinnslu út árið með leigu á aflaheimildum frá HB Granda og öðrum verkefnum.

Hafnarnes Ver er í eigu Hannesar Sigurðssonar útgerðarmanns og fjölskyldu hans. „Þetta eru mjög þung spor. Það var erfitt að standa fyrir framan starfsfólkið í gær [fyrradag] og segja frá þessu. Alveg sama þótt fólkið haldi vinnunni. Það er áfall fyrir það að heyra að búið sé að selja aflaheimildirnar. Við vorum líka hálfdofin,“ segir Ólafur Hannesson framkvæmdastjóri, sonur Hannesar Sigurðssonar.

Skuldirnar hækkuðu

Hannes keypti fyrirtækið Hafnarnes á árinu 2006 og sameinaði fyrirtæki sínu á árinu 2006. Ólafur segir að það hafi verið gert til að halda aflaheimildunum í byggðarlaginu. „Svo kom hrunið. Skuldirnar stökkbreyttust og tekjurnar minnkuðu vegna verðfalls í Portúgal og á Spáni sem var okkar helsta markaðssvæði. Það er sama sagan hjá okkur og öðrum fyrirtækjum og heimilum í landinu,“ segir Ólafur, spurður um ástæður þess að kvótinn var seldur.

Hann segir að bankinn hafi gert þeim ákveðið tilboð um greiðslu lána sem fól í sér að selja þurfti kvótann. Það hafi verið tímasett nú. „Það var það eina sem hægt var að gera,“ segir Ólafur og bætir því við að betra hafi verið að selja kvótann en að eiga á hættu að missa allar eignirnar.

Hann segir að fyrst hafi verið reynt að selja kvótann til fyrirtækja í byggðarlaginu. Rætt hafi verið við fleiri en einn aðila í dágóðan tíma en samkomulag ekki náðst.

Meginhluti aflaheimilda fyrirtækisins var seldur. Ólafur segir þó að áfram verði barist. „Við munum halda fólki í vinnu, eftir bestu getu. Starfsemin verður óbreytt næstu mánuðina. Við leigjum aflaheimildirnar til að tryggja það. Það er sameiginlegur hugur allra sem að þessu standa að halda sem flestum í vinnu,“ segir Ólafur.

Uppistaðan í rekstri Hafnarness Vers hefur verið útgerð þriggja báta og saltfiskvinnsla. Einnig hafa verið unnin sæbjúgu, humar og fleiri tegundir. Ólafur segir að leitað verði að öðrum verkefnum fyrir skipin og vinnsluna. Fyrirtækið muni leigja aflaheimildir og kaupa fisk á markaði og verði væntanlega áfram með báta í viðskiptum. HB Grandi er að byggja upp hátæknifiskvinnslu á Vopnafirði og mun nota aflaheimildirnar meðal annars til að afla hráefnis fyrir hana. Vinnslan á að vera tilbúin í lok október.

Þegar HB Grandi kynnti áform sín um bolfiskvinnslu á Vopnafirði kom fram að hráefnið myndi ekki verða tekið af öðrum starfsstöðvum fyrirtækisins. Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri segir að horft hafi verið til þess að nota aukningu í úthlutuðum kvóta til að vinna á Vopnafirði. Bjartsýni hafi ríkt um að þorskkvótinn yrði aukinn um10%. Það hefði þýtt 940 tonna viðbót hjá HB Granda. Aflamark var hins vegar lítið aukið og því hafi þurft að leita annarra leiða.

Að sögn Vilhjálms hefur ekki verið ákveðið hvernig aflanum verður komið til vinnslu. Hvort honum verði landað á Vopnafirði eða ekið þangað frá öðrum stöðum.

„Þetta er okkar viðleitni til að viðhalda byggð á staðnum. Við erum langstærsti atvinnurekandinn á Vopnafirði og verðum að geta boðið fólki upp á vinnu allt árið, sem það getur haft viðunandi afkomu af,“ segir Vilhjálmur.

Milljarða fjárfesting

Áætlað er að endurnýjun húsnæðisins á Vopnafirði og vinnslubúnaðar kosti um einn milljarð króna. Aflaheimildirnar, tæplega 1.600 þorskígildistonn, eru keyptar á tæpar 4 milljarða. Vilhjálmur tekur fram að ekki sé hægt að færa alla þá upphæð á verkefnið á Vopnafirði því með í kaupunum sé meðal annars aflahlutdeild í humri sem ekki henti fyrirtækinu að nota og verði væntanlega seld.

HB Grandi er kvótahæsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins. Aflahlutdeild þess fer úr 43.800 þorskígildistonnum í um 45.400 tonn við þessi kaup, eða úr 10,7% af heildaraflahlutdeild í um 11,1%. Fyrirtækið er enn vel undir hámarkinu sem er 12% í heildina.