Regína Ásvaldsdóttir
Regína Ásvaldsdóttir
Skúli Halldórsson sh@mbl.is Lögreglustjóri lögreglunnar á Vesturlandi hefur verið boðaður á fund bæjarráðs Akraness í dag.

Skúli Halldórsson

sh@mbl.is

Lögreglustjóri lögreglunnar á Vesturlandi hefur verið boðaður á fund bæjarráðs Akraness í dag. Hyggst ráðið taka fyrir málefni lögreglunnar í kjölfar umfjöllunar Morgunblaðsins í gær, um niðurskurð hjá fáskipuðu lögregluliði embættisins.

Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri á Akranesi, segir bæjaryfirvöld líta stöðu lögreglunnar alvarlegum augum, en þau mótmæltu harðlega staðsetningu lögreglustjóra við sameiningu lögregluembættanna árið 2014 og bentu ráðuneytinu ítrekað á að kaupstaðurinn væri sá langfjölmennasti á Vesturlandi, á Akranesi væri fjöldi afbrota mestur í fyrirhuguðu umdæmi, auk þess sem þar væri starfandi miðlæg rannsóknardeild fyrir allt Vesturland.

Þannig sé Akranes með um helming allra hegningar- og sérrefsilagabrota í umdæminu, auk þess sem um 60% af alvarlegustu brotunum séu framin innan bæjarins.

„Svörin sem ráðamenn gáfu okkur voru að með sameiningunni yrði styrking á löggæslunni á Akranesi, meðal annars með tilkomu sólarhringsvakta sem áður höfðu verið lagðar af,“ segir Regína.

„Nú er ljóst að það hefur ekki gengið eftir og okkur finnst það mjög alvarlegt að ekki sé vakt hér allan sólarhringinn, í ljósi þess að hér búa sjö þúsund manns.

Við teljum einfaldlega að hér séu verkefni og mál sem þarfnast þess að stjórnun lögreglunnar sé mun nær vettvangi en nú er raunin,“ segir hún og bætir við að hún hafi fengið ábendingar um tilvik þar sem enginn hafi verið á vakt lögreglunnar í Akranesi fyrir hádegi í miðri viku.

„Við munum leita skýringa á þessu á fundi okkar með lögreglustjóranum.“