Skemmdar Freskur Baltasars hafa vakið athygli í hartnær 30 ár.
Skemmdar Freskur Baltasars hafa vakið athygli í hartnær 30 ár. — Morgunblaðið/Þórður
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Freskur Víðistaðakirkju hafa orðið fyrir skemmdum vegna umgangs og rakaskemmda í kjölfar þakleka í kirkjunni.

Benedikt Bóas

benedikt@mbl.is

Freskur Víðistaðakirkju hafa orðið fyrir skemmdum vegna umgangs og rakaskemmda í kjölfar þakleka í kirkjunni. Sótti sóknarnefnd kirkjunnar um styrk hjá Hafnarfjarðarbæ upp á 1,5 milljónir króna til að standa straum af viðgerð og greiða Baltasar Samper listmálara, sem gerði verkin fyrir tæpum 30 árum, fyrir lagfæringuna. Bærinn veitti 250 þúsund krónur í styrk og í bréfi til bæjaryfirvalda lýsir sóknarnefndin yfir vonbrigðum með þær málalyktir.

Til að upplýsa bæjarráð hefur sóknarnefndin boðið því í heimsókn í kirkjuna í næsta mánuði til að fá upplýsingar frá fyrstu hendi. Hjörleifur Þórarinsson, formaður sóknarnefndarinnar, hefur ekki fengið viðbrögð bæjarráðs við þessu boði en býst við að málið verði tekið upp þegar sumarleyfum ljúki. „Þetta eru mjög merkilegar myndir og stærð þeirra og umfang er óþekkt í öðrum kirkjum landsins. Við viljum hlúa að þeim og kostnaðaráætlun, sem yrði laun listamannsins, sem við sendum inn hljóðaði upp á 1,5 milljónir króna. Þess vegna viljum við eiga fund með bæjarráðinu til að útskýra hvaða vinna þarf að fara fram,“ segir Hjörleifur. Kirkjan ætlar sjálf að standa straum af kostnaði vegna þaklekans.

Það tók Baltasar um tvö ár að undirbúa gerð myndanna þar til endanlegu takmarki var náð. Uppsetning þeirra tók ekki langan tíma, því hann málaði þær á röskum þremur mánuðum frá hausti 1986 og til 9. janúar 1987 segir á heimasíðu kirkjunnar.