Ásmundur Friðriksson
Ásmundur Friðriksson
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hyggst bjóða sig fram í 1.-2. sæti á lista flokksins fyrir prófkjör í Suðurkjördæmi sem fram fer 10. september nk.

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hyggst bjóða sig fram í 1.-2. sæti á lista flokksins fyrir prófkjör í Suðurkjördæmi sem fram fer 10. september nk.

„Ég hef haft mikla ánægju af því að vinna fyrir alla íbúa í kjördæminu frá síðustu kosningum, deila með þeim gleði og sorg og taka undir vagninn með fólki þegar aðstoðar hefur verið þörf. Ég hef sýnt það að ég læt verkin tala og stend með sannfæringu minni eins og fram hefur komið í mörgum málum. [...] Ég mun halda áfram á þeirri braut sem ég hef markað mér og vinna með fólkinu og atvinnulífinu í Suðurkjördæmi fái ég til þess stuðning í prófkjörinu 10. september,“ segir meðal annars í tilkynningu frá Ásmundi.

Þá býður Kristján Óli Níels Sigmundsson sig fram í 3.-4. sæti Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, að því er fram kemur í tilkynningu sem Morgunblaðinu barst frá honum.