Frænkur okkar frá Svíþjóð voru á meðal þeirra sem riðu á vaðið á Ólympíuleikunum í Ríó. Svíþjóð hafði betur 1:0 gegn Suður-Afríku í knattspyrnukeppni leikanna í gærkvöldi.
Nilla Fischer skoraði eina mark leiksins og sést hér fagna því innilega innan úr markinu. Var þetta fyrsti leikur liðanna sem eru í E-riðli.
Ólympíuleikarnir 2016 eru því byrjaðir í Brasilíu en samt ekki. Upphafshátíðin sjálf fer ekki fram fyrr en annað kvöld og þá hefjast leikarnir með formlegum hætti þegar ólympíueldurinn frægi verður tendraður á ólympíuleikvanginum sjálfum.
sport@mbl.is