Íslandsmeistarar FH sýndu í gærkvöldi hvers þeir eru megnugir þegar þeir fóru upp á Akranes og nældu í þrjú stig í Pepsí-deild karla. Skagamenn höfðu unnið fimm leiki í röð í deildinni en FH tókst að stöðva þá sigurgöngu með 3:1 sigri.
Íslandsmeistarar FH sýndu í gærkvöldi hvers þeir eru megnugir þegar þeir fóru upp á Akranes og nældu í þrjú stig í Pepsí-deild karla. Skagamenn höfðu unnið fimm leiki í röð í deildinni en FH tókst að stöðva þá sigurgöngu með 3:1 sigri. FH hefur aðeins tapað einum leik af fyrstu þrettán í deildinni. Atli Viðar Björnsson skoraði tvívegis og hefur alls gert 111 mörk fyrir FH. 2