Sólin lék við borgarbúa á Klambratúni síðdegis í gær þegar Íþróttafélagið Styrmir stóð fyrir gleði og grilli undir berum himni þriðja árið í röð. Fjöldi gesta mætti til að spreyta sig í alls kyns útileikjum svo sem pokahlaupi, blaki og boltaleikjum.
Sólin lék við borgarbúa á Klambratúni síðdegis í gær þegar Íþróttafélagið Styrmir stóð fyrir gleði og grilli undir berum himni þriðja árið í röð. Fjöldi gesta mætti til að spreyta sig í alls kyns útileikjum svo sem pokahlaupi, blaki og boltaleikjum. Viðburðurinn var hluti af Hinsegin dögum sem standa nú sem hæst í Reykjavík.