Smárabíó býður upp á foreldrabíó sem er bíóupplifun sérsniðin að foreldrum í fæðingarorlofi. Foreldrar geta komið með litlu krílin og notið þess að horfa á nýjustu bíómyndirnar við aðstæður sem henta bæði þeim og börnunum.
Í Foreldrabíói er hljóðið dempað og ljósin dempuð svo ungviðið geti sofið vært og foreldrar séð til þegar þeir þurfa að sinna börnunum. Einnig er boðið upp á skiptiaðstöðu fyrir ungbörnin.
Næsta sýning í Foreldrabíói er kl. 12 á morgun, föstudaginn 5. ágúst. Sýndar verða myndirnar Bad Moms, Jason Bourne og Leynilíf gæludýra.
Föstudaginn 19. ágúst gefst nýbökuðum foreldrum svo tækifæri til að sjá Nerve og Jason Bourne.