Líflegt var þegar Dunkin Donuts opnaði sinn fyrsta stað hér 5. ágúst 2015.
Líflegt var þegar Dunkin Donuts opnaði sinn fyrsta stað hér 5. ágúst 2015. — Morgunblaðið/Styrmir Kári
Matur Kleinuhringjakeðjan Dunkin Donuts hefur selt meir en milljón kleinuhringi á því ári sem nú er liðið frá því fyrsti staðurinn undir merkjum Dunkin Donuts var opnaður hér.

Matur Kleinuhringjakeðjan Dunkin Donuts hefur selt meir en milljón kleinuhringi á því ári sem nú er liðið frá því fyrsti staðurinn undir merkjum Dunkin Donuts var opnaður hér. Síðan hafa tveir staðir til viðbótar verið opnaðir og stefnt er að opnun tveggja staða tilviðbótar í yfirstandandi mánuði.

„Síðastliðið ár er búið að vera mjög áhugavert hjá okkur. Viðtökurnar við opnun fyrsta staðarins á Laugavegi voru hreint út sagt frábærar og móttökurnar við hinum stöðunum og veitingunum frá okkur hafa verið það líka,“ segir Sigurður Karlsson, framkvæmdastjóri Dunkin Donuts á Íslandi. Hann segir viðskiptavini samtals vera fleiri en 300 þúsund, seldir hafi verið fleiri en 250 þúsund drykkir og meir en milljón kleinuhringir.

Fregnir hafa nú borist af því að reynt sé að fá Krispy Kreme til landsins en vörumerkin eru álitin keppinautar erlendis. „Við óttumst ekki samkeppnina enda er Dunkin Donuts lang stærsta vörumerkið á þessum markaði og þekkt fyrir mikil gæði, gott vöruúrval og hagstætt verð.“

jonth@mbl.is