Táknræn mynd. N-Allir
Norður | |
♠KDG1094 | |
♥1054 | |
♦65 | |
♣64 |
Vestur | Austur |
♠82 | ♠63 |
♥ÁDG762 | ♥K983 |
♦D8 | ♦ÁG742 |
♣G98 | ♣K5 |
Suður | |
♠Á75 | |
♥– | |
♦K1093 | |
♣ÁD10732 |
Suður spilar 4♥.
Marty Fleisher vann Pierre Zimmermann (Mónakó) með 15 impa mun í úrslitaleik Spingold (106-91). Spilið að ofan kom upp í síðustu lotunni.
Legan er góð og það má vinna 6♠ í NS með því að svína ♣D og trompa laufið frítt. En slemman er alltof hörð og hinn rökrétti samningur er 4♠. Þar enduðu liðsmenn Fleishers, þeir Brad Moss og Joe Grue. Moss spilaði gætilega og fékk aðeins tíu slagi.
Hinum megin lentu Krzysztof Martens og Franck Multon í multi-slysi. Martens vakti á 2♦ (veikt með annan hálitinn) og Multon svaraði með 2♥ – til að spila á móti hjarta. Þegar Martens sagði óvænt 2♠ gjörbreyttust spil suðurs og Multon reyndi við slemmu með splinter-stökki í 4♥. Allir pass, fimm niður og 15 impar til Fleishers.
Hvor á sökina? Ekki gott að segja, en eitt er víst: Martens var ekki með á myndinni sem tekin var af silfursveitinni í mótslok.