Bill Gates
Bill Gates
Talið er að Bill Gates, sem er ríkasti maður í heimi, eigi skuldlausar eignir sem eru metnar á 75 milljarða bandaríkjadala, bendir Páll Kolbeins á í grein sinni. Það eru ríflega þrefaldar framtaldar eignir einstaklinga á Íslandi.
Talið er að Bill Gates, sem er ríkasti maður í heimi, eigi skuldlausar eignir sem eru metnar á 75 milljarða bandaríkjadala, bendir Páll Kolbeins á í grein sinni. Það eru ríflega þrefaldar framtaldar eignir einstaklinga á Íslandi. Páll segir enn fremur að talið sé að það séu fleiri en 30 milljarðamæringar í heiminum sem eiga meira en 23,2 milljarða bandaríkjadala í skuldlausum eignum en skuldlausar eignir einstaklinga á Íslandi eru metnar á 23,2 milljarða. Páll bendir á fleiri atriði til marks um smæð Íslands í alþjóðlegu samhengi. Til dæmis að það starfi hátt í tíu sinnum fleiri fyrir verslanakeðjuna Walmart en greiða útsvar á Íslandi.