Sunnudaginn 7. ágúst mun Steinn Ármann Magnússon leikari hjóla með þeim sem vilja um Viðey. Hjólaleiðin er hvorki löng né strembin þannig að allir ættu að geta komið og verið með, hjólagarpar sem og byrjendur á öllum aldri.

Þátttakendur koma með eigin reiðhjól og þeim verður kippt með í ferjuna. Allir eru velkomnir enda hentar hjólatúrinn öllum sem hafa gaman að því að hjóla, segir í tilkynningu. Siglt verður frá Skarfabakka kl. 13.15 en ferðin hefst 13.30.