Wise sýnir stöðuga viðleitni til að mæta þörfum viðskiptavina.
Wise sýnir stöðuga viðleitni til að mæta þörfum viðskiptavina. — AFP
Wise hefur hlotið viðurkenningu sem einn af bestu samstarfsaðilum Microsoft um allan heim fyrir framúrskarandi árangur á síðasta ári.

Wise hefur hlotið viðurkenningu sem einn af bestu samstarfsaðilum Microsoft um allan heim fyrir framúrskarandi árangur á síðasta ári.

Tilkynnt var um viðurkenninguna á árlegri ráðstefnu samstarfsaðila Microsoft (Microsoft Worldwide Partner Conference) sem haldin var í Toronto í Kanada í júlí. Í Microsoft Dynamics President‘s Club eru allra bestu samstarfsaðilar Microsoft Dynamics á heimsvísu eða topp 5%. Aðildin er veitt fyrir stöðuga viðleitni til að mæta þörfum viðskiptavina með lausnum og þjónustu sem hentar þeim.

„Þetta merkir það að við erum í topp 5% í Microsoft-heiminum,“ segir Jón Heiðar Pálsson, sviðsstjóri sölu- og markaðssviðs Wise.