Lögreglan á Suðurnesjum handtók um síðustu helgi grunaðan fíkniefnasala og lagði hald á meint fíkniefni og landa á heimili hans, að fenginni leitarheimild.

Lögreglan á Suðurnesjum handtók um síðustu helgi grunaðan fíkniefnasala og lagði hald á meint fíkniefni og landa á heimili hans, að fenginni leitarheimild. Við öryggisleit á manninum fannst umtalsverð fjárhæð í reiðufé, segir í frétt frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Þegar umræddur einstaklingur var færður á lögreglustöð kom í ljós við sýnatökur að hann hafði neytt metamfetamíns, MDMA og kannabisefna. Hann var yfirheyrður með aðstoð túlks og látinn laus að því loknu.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál.