Þorsteinn G. Gunnarsson
Þorsteinn G. Gunnarsson
Þorsteinn G. Gunnarsson hefur verið ráðinn upplýsinga- og kynningarfulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar og hefur þegar hafið störf hjá félaginu.

Þorsteinn G. Gunnarsson hefur verið ráðinn upplýsinga- og kynningarfulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar og hefur þegar hafið störf hjá félaginu.

Auk samskipta við fjölmiðla mun Þorsteinn vinna að margvíslegum verkefnum fyrir Slysavarnafélagið Landsbjörgu sem lúta að málefnum félagsins.

Í fréttatilkynningu kemur fram að Þorsteinn hefur víðtæka reynslu af almannatengslum og kynningarmálum eftir að hafa starfað sem ráðgjafi í almannatengslum í 18 ár, lengst af hjá KOM almannatengslum. Þar áður starfaði hann sem blaðamaður, ritstjóri og dagskrárgerðarmaður.