Gestgjafinn Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir hefur verið ráðin ritstjóri tímaritsins Gestgjafans. Hanna Ingibjörg hefur starfað sem blaðamaður á Gestgjafanum um árabil og þekkir því mjög vel til starfa innan ritstjórnar blaðsins. Hanna Ingibjörg er með...
Gestgjafinn Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir hefur verið ráðin ritstjóri tímaritsins Gestgjafans.

Hanna Ingibjörg hefur starfað sem blaðamaður á Gestgjafanum um árabil og þekkir því mjög vel til starfa innan ritstjórnar blaðsins.

Hanna Ingibjörg er með B.Ed. í grunnskólakennarafræðum frá Háskóla Íslands. Auk starfa á Gestgjafanum á undanförnum árum hefur hún unnið fyrir franska sendiráðið og einnig sem kennari í Réttarholtsskóla. Hanna Ingibjörg er gift Kjartani Valdemarssyni, hljómlistarmanni og eiga þau tvær dætur.

Útgefandi Gestgjafans er Birtíngur, útgáfufélag.