Störf: 2000 kynningarfulltrúi Eimskips; 2003-2007 kynningarstjóri Námsgagnastofnunar; 2007-2016 verkefnastjóri MBA-náms í Háskólanum í Reykjavík; 2016 framkvæmdastjóri FKA, Félags kvenna í atvinnulífinu.
Áhugamál: Sund, ferðast, njóta náttúrunnar, elda góðan mat en það besta sem ég veit eru gæðastundir með fjölskyldunni og að skapa fallegar minningar sem er það dýrmætasta sem við gefum hvert öðru.
Fjölskylduhagir: Bý í Kjósinni við Meðalfellsvatn og er gift Bubba Morthens tónlistarmanni. Við erum rík af börnum og eigum samtals sex. Litlu stelpurnar okkar þær Ísabellu, Dögun og Aþenu og stóru börnin Hörð, Grétu og Brynjar.