„Við höfum ekki undan að svara fyrirspurnum um Reykjadal. Ferðamenn vilja fá upplýsingar um heitu ána sem þeir geta baðað sig í,“ segir Sigurdís Lilja Guðjónsdóttir, forstöðumaður Upplýsingamiðstöðvar Suðurlands í Hveragerði.
Hún segir fyrirspurnum um Reykjadal í Hveragerði hafa fjölgað mikið undanfarin ár, sérstaklega milli áranna 2014 og 2015 en þá hafi orðið hálfgerð sprenging. Hún segir fyrirspurnirnar vera svipaðar núna í ár og í fyrra. „Það hefur alltaf verið vinsælt hjá ferðamönnum að baða sig í heitum ám og lækjum úti í náttúrunni,“ segir hún en Sigurdís hefur starfað í ferðamálum um árabil. Flestir, eða um 80%, ganga að ánni og aftur til baka, áætlar Sigurdís. Aðrir fara í lengri gönguferðir, jafnvel kringum Ölkelduháls. Flestir fara á eigin vegum en ferðaþjónustufyrirtæki bjóða einnig upp á skipulagðar ferðir í Reykjadalinn.
Kynningarspjöld og -bæklingar hafa verið útbúin til að fræða erlenda ferðamenn um Reykjadal í því skyni að fækka fyrirspurnum sem berast til Upplýsingamiðstöðvar Suðurlands um staðinn en það dregur ekki úr þeim. „Útlendingurinn vill alltaf líka heyra beint frá fólki á staðnum og fá þessi mannlegu samskipti,“ segir hún.
Bílastæðin við Reykjadal hafa meira og minna verið full í sumar og bílum lagt þétt á veginn.
thorunn @mbl.is